Vitnisburður
Hvað segja viðskiptavinir
"Ég starfaði með Guðbjörgu Erlendsdóttur í alþjóðlegu mannauðsverkefni sem snerist um leiðtogaþjálfun og samskiptafærni. Þetta samstarf við Guðbjörgu var mjög gefandi, faglegt og áhugavert og upplifði ég hana sem reynslumikinn aðila sem vann alltaf af mikilli fagmennsku, með einstaklega skarpa hugsun og mikla yfirvegun."
Guðmundur G. Hauksson - Framkvæmdastjóri hjá Framför
"Við nýttum okkur þjónustu Guðbjargar á sviði markþjálfunar til að stilla saman hóp starfsfólks og stjórnenda hjá fyrirtæki á tímum mikils vaxtar. Hennar aðkoma hjálpaði okkur að setja sameiginleg markmið og sýn á stefnu fyrirtækisins, búa til traust milli starfsfólks, gera samskipti milli þeirra skilvirkari og skýrari, og gefa hverjum og einum starfsmanni tæki til að vinna að því að ná sínum eigin markmiðum innan fyrirtækisins."
Sigurður Snorrason - Framkvæmdastjóri S.B. brugghúss ehf.
“Guðbjörg Erlendsdóttir gegndi starfi starfsmanna-, gæða- og þjónustustjóra félagsins um rúmlega 14 ára skeið eða frá byrjun árs 2008 og til 2022. Umsvif félagsins á þessu tímabili um það bil þrefölduðust og hjá félaginu starfa á bilinu 180 til 190 manns enda fyrirtækið eitt af þrjú - fjögurhundruð stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Guðbjörg leiddi mikilvægasta og umsvifamesta svið félagsins og sem slík gegndi hún mjög mikilvægi hlutverki fyrir rekstur félagsins þannig að hann gæti stækkað og styrkst. Hún kom inn á umbrotatímum árið 2008 og kom á nauðsynlegu og góðu skipulagi þjónustu- og starfsmannamála Hreint sem hún hélt utan um með miklum ágætum alla tíð. Til að nefna dæmi um sérlega mikilvæg verkefni sem hún leysti með framúrskarandi hætti eru Svansvottun (gæða- og umhverfisvottun) og jafnlaunavottun Hreint. Dæmi um minni verkefni sem Guðbjörg innleiddi eru fjarvistaskráningar í samstarfi við Vinnuvernd, mannauðslausnir Kjarna, 50skills ráðningakerfi, starf öryggisnefndar félagsins, sérhæfðan hugbúnað fyrir ræstingafyrirtæki sem og utanumhald margskonar fræðsluverkefna og þjónustutengdra verka. Guðbjörg reyndist samstarfsfólki og eigendum Hreint frábærlega sem faglegur, samviskusamur og nákvæmur fagmaður. Hún er einhver traustasta samstarfsmanneskja sem undirritaður hefur nokkru sinni starfað með og skilaði frábæru dagsverki á starfstíma sínum hjá Hreint ehf. Undirritaður veitir fúslega frekari upplýsingar og meðmæli um störf Guðbjargar hjá Hreint.”
Ari Þórðarson - framkvæmdastjóri Hreint
“Ég starfaði með Guðbjörgu í fjölmörg ár þar sem hún var Starfsmanna-, gæða- og þjónustustjóri. Samstarfið og samskiptin einkenndust alltaf af fagmennsku og yfirgripsmikilli þekkingu af Guðbjargar hálfu. Hún stýrði hóp stjórnanda sem voru samtals með um 150 starfsmenn undir sér og hundruði verkstaða. Ljóst að það krafðist það mikillar skipulagningar, stýringar og utanumhalds sem Guðbjörg leiddi fagmannlega með sínum undirmönnum. Hún átti stóran þátt í að vel tókst að halda utan um öra stækkun þjónustu fyrirtækisins á síðustu árum en frá því hún höf störf þrefaldaðist veltan. Samstarf okkar hjá fyrirtækinu fór frá því að ég starfaði sem undirmaður hjá henni yfir í að ég óx upp í að starfa samhliða henni í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Alltaf skein það í gegn að hún hafi mikla þekkingu á þeim hlutum og stefnum sem voru í gangi hverju sinni og var fljót að kynna sér þá hluti ef eitthvað þurfti við að bæta. Hún stýrði m.a. innleiðingu á stórri umhverfs- og gæðavottun Svansins auk jafnlaunavottunar hjá fyrirtækinu. Hún stýrði fjölmörgum vinnuhópum innan fyrirtækisins og leiddi þá undantekningarlaust. Hún var einnig dugleg að hvetja samstarfsfólk sitt til að viðhalda og bæta við sig þekkingu með að benda því á áhugaverða fyrirlestra og námskeið sem í boði voru. Styrkleikar hennar eru fyrst og fremst í stjórnun og mannauði en hún hefur fjölbreytta reynslu þvert yfir öll svið sem gerir hana gríðarlega verðmæta og hæfa til að takast á við fölbreytt verkefni. Kraftmikil, samviskusöm, nákvæm og fær eru orð sem ég tel lýsa Guðbjörgu hvað best.”
Rúnar Ágúst Svavarsson - þróunar- og markaðsstjóri Hreint ehf
"Ég starfaði með Guðbjörgu í rúm 3 ár hjá Hreint ehf. þar sem hún var yfir þjónustu-, gæða- og mannauðssviði fyrirtækisins og ég sölustjóri. Okkar leiðir lágu oft saman þar sem deildir okkar þurftu að spila vel saman til að tryggja gott jafnvægi á milli lofaðar þjónustu og framkvæmdar þjónustu. Mín kynni af Guðbjörgu einkenndust af góðum samskiptum og fagmennsku í starfi. Það var alltaf hægt að leita til hennar varðandi starfsmannatengd mál, kjaramál eða annað sem snéri að hennar sviðum enda bjó hún yfir víðtækri þekkingu og vel að sér í faginu. Guðbjörg er skipulögð og nákvæm og þegar mikið lá undir vann Guðbjörg oft langt fram eftir til að tryggja gæði þjónustunnar og fylgja málum eftir. Má því segja að ósérhlífni og eljusemi lýsi henni vel að mínu mati. Guðbjargar verður sárt saknað."
Skúli Örn Sigurðsson - sölustjóri Hreint
"Leiðir okkar Guðbjargar Erlendsdóttur lágu fyrst saman þegar hún, sem starfsmannastjóri Hreint ehf sá um ráðningu mína í sölustjórastarf fyrirtækisins. Fyrstu kynni gefa oft góð fyrirheit um hvers má vænta af væntanlegu samstarfi. Hennar nálgun á ráðningu mína, verður mér ætíð minnisstæð, því fagmennskan og ferlið sem hún hafði byggt upp var með því besta sem ég hef kynnst á mínum ferli. Starfssvið Guðbjargar hjá Hreint var mjög umfangsmikið, hún var í raun með þrjá hatta, starfsmanna- gæða- og þjónustustjóri. Slíkt umfang ábyrgðar krefst góðs skipulags og hæfni til einstaks samskiptahæfileika. Það sem einnig er til fyrirmyndar er að öll þessi starfssvið mótaði Guðbjörg að mestu frá grunni innan fyrirtækisins og skal þó sérstaklega nefna í því samhengi starfsmanna- og gæðamálin. Vöxtur Hreint á þessum árum var mjög mikill og því mjög mikilvægt að stjórnun starfsmannamála og þjónustu væri til fyrirmyndar. Við Guðbjörg unnum saman í átta ár hjá Hreint. Oft getur sala á þjónustu leitt til flækjustigs í útfærslum þjónustu, sem svo geta haft áhrif á gæði verkefna, öll slík mál sem upp komu, voru leyst faglega með opnum og jákvæðum samskiptum. Guðbjörg er sanngjörn, áreiðanleg, skipulögð og síðast en ekki síst mjög samviskusöm. Þegar kemur að mannauðs-, gæðamálum og/eða ferlum tengum þjónustu þá er Guðbjörg verðugur ráðgjafi að leita til."
Guðmundur Stefán Jónsson - sjálfstætt starfandi sérfræðingur
"Það var mikið gæfuspor fyrir mig að kynnast Guðbjörgu og það má með sanni segja að eftir að hafa verið hjá henni í markþjálfun hafi líf mitt tekið skýrari stefnu og orðið skemmtilegra. Guðbjörg hefur hjálpað mér að takast á við áskoranir bæði í vinnu og einkalífi, hjálpað með að setja mér raunhæf en krefjandi markmið og fengið mig til þess að forgangsraða og taka til í mínu lífi. Hún er hvetjandi, lausnarmiðuð, les vel í aðstæður, spyr opinna spurninga og er dugleg að leiða mann áfram í þeim fjölbreyttu verkefnum sem ég hef verið að fást við. Ég get heilshugar mælt með Guðbjörgu sem markþjálfa."
Guðrún H. Jónasdóttir - Verkefnastjóri Kvikmyndamiðstöð Íslands
"Ég hef nýtt mér markþjálfun hjá Guðbjörgu í tvígang og í síðara skiptið var ég kominn upp að vegg með ákveðið verkefni. Hún reynist mér mjög vel í að vinna úr stöðunni og átta mig á því að ég væri búin að reyna allt sem sérfræðiþekking mín leyfði og tímabært væri að bakka út og hleypa nýju blóði að verkefninu. Ég get mælt með Guðbjörgu sem markþjálfa."
MSS
"Við Guðbjörg Erlendsdóttir störfuðum saman hjá Hreint á árunum 2018-2020. Ég var í stöðu ráðningarstjóra og Guðbjörg var minn yfirmaður sem starfsmanna-, gæða- og þjónustustjóri. Guðbjörg er leiðtogi sem gott er að leita til. Hún leiðbeindi mér, miðlaði þekkingu og sýndi mér á sama tíma fullt traust til að taka hlutina áfram. Dyrnar hennar voru ávallt opnar og samskiptin okkar á milli góð. Ég lærði heilmikið af henni sem ég bý enn að og er virkilega þakklát fyrir. Fagmennska og skýrir verkferlar eru í fyrirrúmi hjá Guðbjörgu. Ég vissi hvað fólst í starfinu og fékk réttu verkfærin til að sinna því. Guðbjörg hélt góðu skipulagi á gagnavinnslu og skjalagerð. Þar má m.a. nefna ráðningarsamninga þar sem þekking Guðbjargar í kjaramálum kom vel í ljós. Starfsmannasamtölin voru eins og best verður á kosið, góður undirbúningur, heiðarleg samskipti og uppbyggileg gagnrýni sett fram á mannlegan máta. Guðbjörg hélt vel utan um fræðslumálin og hvatti starfsmenn einnig til að miðla þekkingu sín á milli. Ég mæli eindregið með samstarfi við Guðbjörgu."
Sylvía Guðmundsdóttir - Mannauðssérfræðingur og Markþjálfi
"Guðbjörg var yfirmaður minn í sex ár. Þar af leiðandi kynntist ég henni vel og get fullyrt að hún er ein af sterkustu konum sem ég hef kynnst. Guðbjörg er einstaklega drífandi, hugrökk og ákveðin kona sem kallar svo sannarlega ekki allt ömmu sína. Það sem hún gerir gerir hún heilshugar. Þess vegna myndi ég treysta henni fyrir mér í dáleiðslu eða markþjálfun. Hún er vel kjörnuð og ávallt glöð. Guðbjörg er því sönn fyrirmynd."
Svava Ólafsdóttir - Sjálfstætt starfandi nuddari
"Guðbjörg hóf nám í NLP Practitioner markþjálfun hjá Bruen í febrúar 2016 og útskrifaðist með diplómu sem NLP markþjálfi 7. nóvember 2017. Vegna mikils áhuga á Neuro Linguistic Programming náminu og að eigin ósk var Guðbjörg einnig mér undirritaðri til aðstoðar við kennslu NLP markþjálfunar frá 2016 til 2019 auk þess að sjá um leiðréttingar og yfirlestur námsefnis. Hlutverk hennar með nemendum var að leiðbeina og vera til staðar í verklegum æfingum, verk sem henni fórst einstaklega vel úr hendi. Guðbjörg fékk framúrskarandi góða umsögn nemenda sem hún hafði umsjón með. Sérstaklega var tekið fram að hún hafi sýnt fagmannlega framkomu, sýnt hverjum og einum mikla virðingu, haft ljúfa og jákvæða nærveru. Ég tek heilshugar undir orð nemenda. Út frá samstarfi mínu við Guðbjörgu vil ég bæta við að það er einstaklega gott að vinna með henni, hún er hreinskilin og málefnaleg, kemur skilaboðum vel frá sér um leið og hún er tilbúin að ræða hvert mál frá fleiri sjónarhornum. Hún hefur að mínu mati einstaklega góða innsýn í mannleg samskipti og hefur gott vald á að lesa aðstæður á hlutlægan hátt. Athygli mína vakti hve mikinn áhuga Guðbjörg hefur á persónulegu þroskaferli, eigin og annarra. Henni liggur létt að finna leiðir og lausnir til úrbóta sem byggja á óskum þess sem hún vinnur með. Ég gef því Guðbjörgu hiklaust mín bestu meðmæli."
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir - Eigandi og skólastjóri Bruen