Stjórnenda- og leiðtogamarkþjálfun

business, establishing a business, startup-3639453.jpg

Stendur þú eða fyrirtækið þitt frammi fyrir áskorun? Viltu gera breytingar hjá þér persónulega eða sem stjórnanda, einstaklingunum í teyminu þínu eða fyrirtækinu? Markþjálfun gæti verið lykillinn að breytingum til árangurs.

 

Markmið markþjálfunar er að breyta hegðun, auka árangur og skilvirkni þar sem markmið og leiðir að þeim verða markþega ljósar. Þessi þjálfun hefur reynst stjórnendum og leiðtogum árangursrík þegar unnið er með að efla forystuhæfileika og að tileinka sér sveigjanlegan stjórnunarstíl sem og að setja sér raunhæf markmið og auka færni í lausn ágreinings. Í markþjálfun öðlast markþeginn betri skilning á sjálfum sér, styrkleikum sínum og veikleikum sem hjálpar honum að aðhafast rétt og taka betri ákvarðanir.

 

Hver stjórnandi ætti í raun að hafa markþjálfa og hefur það aldrei verið eins mikilvægt og nú þar sem verkefni þeirra hafa aldrei verið eins fjölbreytt í síkviku viðskiptaumhverfi. Með markþjálfa geta stjórnendur mátað hugmyndir sínar tengt stefnu, hlutverki og sýn fyrirtækissins eða stofnunarinnar. Markþjálfinn aðstoðar stjórnandann að sjá hvaða áhrif hugmyndirnar hafa á ýmsa þætti starfseminnar, hvaða hindranir eru í veginum og hvernig best er að takast á við þær.

 

Stjórnenda- og leiðtogamarkþjálfun getur nýst þér og þínu fyrirtæki þegar þú vilt:

    • bæta þig og árangur þinn sem stjórnanda
    • fá skýrari framtíðarsýn
    • setja þér stefnu og markmið og forgangsraða
    • aðstoð við að takast á við breytingar
    • yfirstíga hindranir
    • fá aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs
    • efla sjálfsvitund
    • efla sjálfstraust
    • fá aukna lífsleikni

Þjálfunin sem Éxito veitir er einstaklingsþjálfun.