Mannauðsráðgjöf og sérfræðiþekking
Er þörf á að koma skipulagi á ýmis starfsmannamál ? Eru til ráðningasamningar og starfslýsingar? Er verið að fylgja lögum og reglum á sviði vinnuverndar, jafnréttismála og persónuverndar?
Éxito veitir ráðgjöf á breiðu sviði mannauðsmála og aðstoðar við að kortleggja stöðuna og móta áætlun um framhhaldið.
Koma tímabundið inn í verkefni með fyrirtækjum og þá í bland ráðgjöf og vinna að þeim verkefnum sem þarf að vinna eins og:
- Frammistöðustjórnun
- Fræðsluáætlun
- Jafnlaunavottun
- Mannauðsstjóri að láni
- NPS ánægjumælingar
- Ráðningar, starfslýsingar, aðstoð við auglýsingar, viðtöl ofl
- Samskipti
- Starfslokaráðgjöf, starfslokasamningar og aðstoð við uppsagnir
- Þróun og innleiðing frammistöðumats og snerpusamtala
- Túlkun kjarasamninga
- Listinn er ekki tæmandi