ÞJÓNUSTA ÉXITO

startup, whiteboard, room-3267505.jpg

Stjórnendaráðgjöf

Er fyrirtækið þitt búið að vaxa umfram innri getu til að taka við þeim vexti? Á hvaða leið er fyrirtækið? Hvaða innviði þarf að styrkja? Hvaða ferla þarf að laga? Hvaða hæfni eða þekkingu vantar inn í starfsmannahópinn? Hvar liggja tækifærin? Þegar stjórnendur standa frammi fyrir svona spurningum er gott að staldra við og rýna inn á við.

 

 

people, business, meeting-1979261.jpg

Mannauðsráðgjöf og sérfræðiþekking

Er þörf á að koma skipulagi á ýmis starfsmannamál ? Eru til ráðningasamningar og starfslýsingar? Er verið að fylgja lögum og reglum á sviði vinnuverndar, jafnréttismála og persónuverndar?

Éxito veitir ráðgjöf á breiðu sviði mannauðsmála og aðstoðar við að kortleggja stöðuna og móta áætlun um framhaldið.

woman, work, office-4702060.jpg

Rekur þú lítið eða meðalstórt fyrirtæki eða stofnun og vantar aðstoð með ýmis starfsmannamál? Éxito býður upp á mannauðsstjóra að láni til lengri eða skemmri tíma sem hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum og stofnunum. Sú þjónusta tekur mið af aðstæðum viðskiptavina og sinnum við ýmist föstum verkefnum eða tímabundnum í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni. Fyrirtæki og stofnanir geta með þessum hætti nýtt víðtæka þekkingu og reynslu okkar af stjórnun mannauðsmála.

business, establishing a business, startup-3639453.jpg

Stjórnenda- og leiðtogamarkþjálfun

Stendur þú eða fyrirtækið þitt frammi fyrir áskorun? Viltu gera breytingar hjá þér persónulega eða sem stjórnanda, einstaklingunum í teyminu þínu eða fyrirtækinu? Markþjálfun gæti verið lykillinn að breytingum til árangurs.

Í sumum tilfellum virkar markþjálfun ekki á einstaklinga, eins og einhver fyrirstaða sé fyrir framgangi og þróun. Ástæðan fyrir slíku getur legið í áföllum sem fólk hefur upplifað á lífsleiðinni. Ef ekki er búið að vinna úr áföllunum geta þau hindrað einstaklinga í að ná settum markmiðum, hindrað framgöngu og haft áhrif á samskipti og líðan. Mikil vitundarvakning er meðal stjórnenda um að veita góðan stuðning inn á vinnustað þegar kemur að andlegri og líkamlegri vellíðan og velferð starfsfólks og á klínísk dáleiðsla og EMDR meðferðarvinna klárlega erindi sem valmöguleiki.
hypnosis, clock, pocket watch-4041582.jpg

Klínísk Dáleiðsla

Klínísk Dáleiðsla er verkfæri sem nýtist vel til að finna hvað heldur aftur af fólki og hindrar framgang og losa um þessar hömlur.

Notast er við Hugræna endurforritun sem er mögnuð leið til að bæta líðan og heilsu og sumum finnst þeir upplifa kraftaverk í þessari meðferð.

EMDR meðferðarvinna

EMDR (Eye Movement Desensitization and Reprocessing) er meðferð sem gerir fólki kleift að losna við einkenni og tilfinningalega vanlíðan sem er afleiðing truflandi lífsreynslu.

Af hverju velja Éxito?

Tölurnar tala sínu máli

Verkefnin eru fjölmörg og á mjög breyðu sviði mannauðsmála, gæða- og þjónustustjórnunar, stjórnenda- og einstaklingsmarkþjálfunar. Guðbjörg byggði nánast upp frá grunni þá verkferla sem tilheyra mannauðs- og gæðasviði hjá síðasta vinnuveitanda. Hún innleiddi mannauðslausnir, ráðningakerfi og Hogan persónuleikapróf við ráðningar til að auka réttmæti þeirra og ýmislegt fleira til að styrkja sviðið. Hún byggði upp gæðakerfi og bar ábyrgð á rekstri þess auk þess að eiga stóran hluta verklagsreglna tengt hennar sviðum sem þurfti að vakta og uppfæra. Hún hefur leitt ýmis verkefni m.a. framleiðslu á fræðslumyndbandi sem nýtt er við móttöku nýliða, fræðslustjóra að láni, innleiðingu á vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins og jafnlaunavottun svo fátt eitt sé nefnt. Einnig hefur hún leitt ýmsa umbótahópa og verið formaður ýmissa nefnda. Sem stjórnandi með mannaforráð lagði hún megináherslu á að efla hvern einstakling og styrkja þannig að hann yrði sálfstæður og öflugur leiðtogi. Öll þau verkefni sem Guðbjörg hefur komið að hafa leitt af sér skýra verkferla, faglegra starf og sterkari liðsheild í mjög svo krefjandi umhverfi.

Umsagnir viðskiptavina vitna um ágæti þeirrar þjónustu sem Éxito stendur fyrir. Brugðist er skjótt við öllum fyrirspurnum og hollustu heitið öllum þeim sem til okkar leita.

200+

Verkefnum lokið

100+

Ánægðir viðskiptavinir

20

Ára stjórnunarreynsla